|
Lyktarlítill og frábær áburður Seyran sem kemur úr metantanknum er lyktarlítill og mjög góð sem áburður á tún, akra og matjurtagarða. Seyran úr metantanknum er það góður áburður að þeir sem hafa aðgang að slíkri seyru hætta fljótt notkun á tilbúnum áburði og nota eingöngu seyruna sem áburð. Með því að vinna þennan lífræna úrgang á þennan hátt þá eru menn að spara sér mikil áburðarkaup og geta jafnframt boðið upp á lífrænt ræktaðar afurðir. |
|
Seyran úr metantanknum Seyran sem kemur úr metantanknum inniheldur köfnunarefni (N), fosfór (P), kalí (K), magnisíum, (Mg) og ýmis önnur snefilefni nauðsynleg plöntum. Við gerjun metanbakteríunnar þá verður til ammonium (NH4+-N) á fljótandi formi sem nýtist plöntum sérstaklega vel. Gerlagróðurinn sem kemur úr metantanknum er mjög góður fyrir plöntur og hann ásamt því að um 50% af lífræna efni gerjast ekki en verður eftir í seyrunni gerir seyruna að þessum frábæra áburði. |
|
Til að nýta sem best það fljótandi köfnunarefni (ammoníum) sem er í seyrunni og verður til við gerjun metanbakteríunnar þá er seyrunni ekki sprautað úr tanknum því þá gufar mikið af þessu verðmæta efni upp. Seyran er því lögð niður með þessum hætti. |
|
Reykjavík - Ísland - Sími:+354 551 3499 - lifgas@lifgas.net |


