|
Gæðakerfi Samhliða því að vinna að því að setja hér upp stöð sem vinnur metan úr lífrænum úrgangi þá vinnur LífGas ehf. að því að setja upp gæðakerfi í tengslum við slíka vinnslu. Markmið okkar er að slíkt gæðakerfi og fullgerð handbók um Umhverfis-, öryggis– og heilsumál liggi fyrir þegar starfsemin og vinnsla hefst. Skref númer tvö er að vinna að því að fá gæðakerfi fyrir starfsemina vottaða. |
|
Starfsmannastefna Við viljum skapa starfsmönnum okkar lifandi og áhugavert starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á endurmenntun, starfsþjálfun og þátttöku starfsmanna að móta starfsemi félagsins. Við forgangsröðun á áherslum okkar setjum við umhverfismál, öryggismál og heilsufarsmál efst á okkar lista. Fjárhagslegur ábati af rekstri getur aðeins orðið að þessir þættir séu í lagi. |
|
Reykjavík - Ísland - Sími:+354 551 3499 - lifgas@lifgas.net |
|
LífGas ehf LífGas ehf. er dótturfélag Verkfræðistofu FHG ehf., stofnað í nóvember 2007. Félagið vinnur nú að því að reisa endurvinnslustöð fyrir lífrænan úrgang á Höfuðborgarsvæðinu. Ætlunin er að vinna metangas sem hægt er að nýta á vélknúin ökutæki. |
|
Markmið Markmið okkar er að kynna á Íslandi nýjungar á sviði endurvinnslu og endurnýjanlegrar orku með því að framleiða úr lífrænum úrgangi metangas sem hægt er að nota á vélknúin ökutæki. |
|
LífGas ehf - Skipurit |
|
Stjórn |
|
Framkvæmdastjóri |
|
Sölustjóri |
|
Rekstrarstjóri |
|
Ræktunarstjóri Búfræðingur |
|
Gæðastjóri Efnafræðingur |
|
Sölumenn Sala á afurðum |
|
Bílstjórar Metanstöð |
|
Seyra, akrar, tún ræktun og búvélar |
