|
LífGas ehf LífGas ehf. býður lausnir til að vinna lífgas og metan úr lífrænum úrgangi. Við bjóðum tilbúnar lausnir ásamt því að við tökum að okkur að hanna, byggja og reka slíkar stöðvar. LífGas ehf. vinnur að því að reisa slíkar stöðvar á Íslandi. |
|
Rafmagn, heitt vatn og metan á bíla og búvélar Lífgasi er hægt að brenna beint og nýta til framleiðslu á rafmagni og heitu vatni. Einnig er hægt er að vinna það enn frekar og breyta því í 97% metan og nota það á bíla, vélar og tæki. |
|
Metangas og áburður Lífræni úrgangurinn fer í gegnum gerjun í metantanki og út kemur lífgas sem er 40% til 70% metan. Einnig seyra sem hefur aukna og bætta eiginleika sem áburður miðað við venjulegan húsdýraáburð. |
|
Tækni og þekking Við bjóðum í samstarfi við innlenda og erlenda aðila nýjustu þekkingu og tækni á þessu sviði og hvernig er best að vinna lífgas úr húsdýraáburði og öðrum lífrænum úrgangi. Í Þýskalandi eru í dag rúmlega 4.000 aðilar að vinna lífgas með þessum hætti og þeir eru að framleiða með þessu gasi um 1.100 MW. Til samanburðar er allt uppsett afl á Íslandi um 1.800 MW. |
|
Hafið samband Hafið samband og kynnið ykkur málin. Hringið, rabbið og fáið upplýsingar í síma 551 3499. |
|
Reykjavík - Ísland - Sími:+354 551 3499 - lifgas@lifgas.net |











